30. apríl 2008

Þemaviku lokið

Þemaviku lokið

Nú er þemaviku lokið sem var um Náttúruperlur Innri- Njarðvíkur. Farið var í göngutúra niður í fjöru, að fitjum og einnig fóru yngra stigið á Fræðasetrið í Sandgerði. Nemendum fannst mjög gaman og fræðandi að vinna að þessu þema. Á föstudeginum var svo sýning á því sem nemendur gerðu tengt þemanu og kom fjöldi foreldra til að skoða verkin. Hægt er að skoða myndir á myndasíðunni

 

Fuglar og fiskar

Þemavikan að þessu sinni var helguð náttúruperlum Innri-Narjðvíkur. 1. - 4. bekkur vann saman að verkefnum tengdum fjörunni, fiskum og fuglum sem finnast hér við Innri - Njarðvík. Þemavikan hófst örlítið fyrr hjá okkur í 1. og 2. bekk en hinum hópunum því á föstudeginum í vikunni áður fórum við í heimsókn í Fræðasetrið í Sandgerði og í fjöruferð út við Garðskagavita. Tilgangur ferðarinnar var að kynna okkur lífríki fjörunnar og kynna okkur þau sjávardýr og fugla sem finnast hér við ströndina. Ferðin gekk frábærlega og voru nemendur himinlifandi og skemmtu allir sér mjög vel. Á mánudeginum í þemavikunni fórum við svo í fjöruferð hér í Innri-Njarðvík. Við byrjuðum á að fara niður í Kópu þar sem við tíndum skeljar og ýmislegt annað sem fundum. Við gengum meðfram ströndinni og enduðum svo við Hákot þar sem við tíndum heilmikið af skeljum, kuðungum og ígulkerjum. Það sem við fundum var svo raðað upp og haft til sýnis á sýningunni. Þriðjudagurinn og miðvikudagurinn fór svo í vinnu tengda fuglum og fiskum. Þessa daga unnu 1-4 bekkur saman að ýmsum verkefnum tengdum fuglum t.d. gerðu nemendur hugtakakort um fisk og fugl sem þeir völdu og höfðu orð á því að þeir hefðu lært heilmikið á þeirri vinnu. Nemendur bjuggu einnig til fugl og fisk sem hengdir voru á sýningarvegginn okkar. Þemavikan var í alla staði mjög skemmtileg og fróðleg. Það voru stoltir nemendur sem leiddu foreldra sína um og sýndu þeim afrakstur vinnu sinnar.

 

 

Fitjar

Í þemanu Náttúruperlur í Innri-Njarðvík var margt fræðandi og skemmtilegt gert. Í hópnum Fitjar-fuglalíf voru nemendur gerðir að fuglaáhugamönnum. Á mánudeginum fórum við niður að Fitum og fylgdumst þar með fuglalífinu. Á þriðjudeginum fórum við niður í fjöruna hjá Fitjum og sáum þá m.a. Tjald, Kríur, endur, Svani. Á miðvikudeginum fórum við niður í fjöruna Kópu þar sem nemendur skoðuð fuglalífið þar og um leið notuðum við tækifærið og týndum rusl. Enda erum við með fjöruna í fóstri. Á föstudeginum var sýningin undirbúin þar sem nemendur bjuggu til karton um fuglategundir, kláruðu vinnubókina sína og nokkrir nemendur bjuggu til líkön.

Afrakstur þemavikunnar er á gangi skólans. Við hvetjum alla til þess að koma og skoða
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla