30. apríl 2008

Þemaviku lokið

Þemaviku lokið

Fuglar og fiskar

Þemavikan að þessu sinni var helguð náttúruperlum Innri-Narjðvíkur. 1. - 4. bekkur vann saman að verkefnum tengdum fjörunni, fiskum og fuglum sem finnast hér við Innri - Njarðvík. Þemavikan hófst örlítið fyrr hjá okkur í 1. og 2. bekk en hinum hópunum því á föstudeginum í vikunni áður fórum við í heimsókn í Fræðasetrið í Sandgerði og í fjöruferð út við Garðskagavita. Tilgangur ferðarinnar var að kynna okkur lífríki fjörunnar og kynna okkur þau sjávardýr og fugla sem finnast hér við ströndina. Ferðin gekk frábærlega og voru nemendur himinlifandi og skemmtu allir sér mjög vel. Á mánudeginum í þemavikunni fórum við svo í fjöruferð hér í Innri-Njarðvík. Við byrjuðum á að fara niður í Kópu þar sem við tíndum skeljar og ýmislegt annað sem fundum. Við gengum meðfram ströndinni og enduðum svo við Hákot þar sem við tíndum heilmikið af skeljum, kuðungum og ígulkerjum. Það sem við fundum var svo raðað upp og haft til sýnis á sýningunni. Þriðjudagurinn og miðvikudagurinn fór svo í vinnu tengda fuglum og fiskum. Þessa daga unnu 1-4 bekkur saman að ýmsum verkefnum tengdum fuglum t.d. gerðu nemendur hugtakakort um fisk og fugl sem þeir völdu og höfðu orð á því að þeir hefðu lært heilmikið á þeirri vinnu. Nemendur bjuggu einnig til fugl og fisk sem hengdir voru á sýningarvegginn okkar. Þemavikan var í alla staði mjög skemmtileg og fróðleg. Það voru stoltir nemendur sem leiddu foreldra sína um og sýndu þeim afrakstur vinnu sinnar.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla