Þemaviku lokið
Í þemanu Náttúruperlur í Innri-Njarðvík var margt fræðandi og skemmtilegt gert. Í hópnum Fitjar-fuglalíf voru nemendur gerðir að fuglaáhugamönnum. Á mánudeginum fórum við niður að Fitum og fylgdumst þar með fuglalífinu. Á þriðjudeginum fórum við niður í fjöruna hjá Fitjum og sáum þá m.a. Tjald, Kríur, endur, Svani. Á miðvikudeginum fórum við niður í fjöruna Kópu þar sem nemendur skoðuð fuglalífið þar og um leið notuðum við tækifærið og týndum rusl. Enda erum við með fjöruna í fóstri. Á föstudeginum var sýningin undirbúin þar sem nemendur bjuggu til karton um fuglategundir, kláruðu vinnubókina sína og nokkrir nemendur bjuggu til líkön.
Afrakstur þemavikunnar er á gangi skólans. Við hvetjum alla til þess að koma og skoða. Enn og aftur sést hvað við í Akurskóla eigum frábærlega skapandi nemendur.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


