Þorgrímur Þráins í heimsókn á miðstiginu
.jpg)
Þorgrímur Þráinsson kom í Akurskóla fimmtudaginn 2.mars og hélt fyrirlestur fyrir nemendur í 5.-7.bekk. Fyrirlesturinn nefndist STERK LIÐSHEILD  hvað getum við lært af landsliðinu í Frakklandi? Hann sýndi myndir og myndbönd af því sem gerðist á bak við tjöldin í Frakklandi og útskýrði hvers vegna landsliðið í knattspyrnu náði svo góðum árangri. Þorgrímur benti nemendum á að þeir eru líka lið (bekkur), með þjálfara (kennara), aðstoðarmenn (foreldra, systkini og fl.) og að nemendur gætu líka verið fyrirliðar (leiðtogar) með því að leggja sig fram.
Þorgrímur var því fyrst og fremst að hvetja þau til dáða, að setja sér markmið, sýna samkennd, hjálpa öðrum, virða kennarann og svo mætti lengi telja. Við i Akurskóla þökkum Þorgrími kærlega fyrir flotta fræðslu og foreldrafélagi Akurskóla sem bauð upp á þennan flotta fyrirlestur.
Myndir í myndasafni.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.