29. febrúar 2012

Þorgrímur Þráinsson ræddi við nemendur 10. bekkjar um Lífið og tilveruna.

Þorgrímur Þráinsson ræddi við nemendur 10. bekkjar um Lífið og tilveruna.

Þorgrímur Þráinsson rithöfundur heimsótti Akurskóla síðastliðinn mánudag.  Hann ræddi við nemendur 10. bekkjar um atriði eins og mikilvægi þess að bera ábyrgð á eigin lífi og árangri. Hvatti nemendur til að nýta hvert augnablik til hins ýtrasta bæði í skóla og heima, eflast við mótlæti og gefast aldrei upp.  Einnig ræddi hann um framkomu og virðingu í samskiptum. Að lokum lét Þorgrímur nemendur setja sér skrifleg markmið og hvatti nemendur til að missa ekki trúna og vinna áfram að markmiðum sínum.  Verkefnið er styrkt af Pokasjóði sem með þessu vill styrkja sjálfsímynd nemenda á lokaári grunnskóla.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla