23. janúar 2015

Þorraþema - brúum bilið

Í þessari viku var sameiginlegt þorraþema hjá 1. bekk og skólahópunum á leikskólunum Akri og Holti. Hópunum er blandað og þau vinna mörg skemmtileg verkefni tengd þorranum og gamla tímanum. 

 

Þau bjuggu til rúgbrauð, smjör og sviðasultu á Holti, spiluðu þorrabingo, þæfðu ull, lásu rúnir, máluðu steina, fóru í gamla leiki í Akurskóla og lærðu um krumma og föndruðu þorratrog á Akri. Einnig fóru hóparnir í Víkingaheima og Stekkjarkot þar sem þau fóru í leiki og heyrðu þjóðsögur.

Þemadagarnir enduðu á þorrablóti í Akurskóla í dag. Þar var sungið og borðaður þorramatur m.a. maturinn sem krakkarnir bjuggu til á Holti.

 

 

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla