Þorraþema

Vikuna 25.-29.janúar var haldið þorraþema hjá fyrsta bekk í Akurskóla sem fer fram í samstarfi við leikskólana Akur og Holt. Markmið vikunnar er að fræða börn um gamla tíma, siði og venjur. Börnunum var skipt í hópa og fengu mismunandi verkefni og fræðslu á hverjum degi. Verkefnin sem voru í boði voru mjög fjölbreytt og skemmtileg, til dæmis var þæft ull, farið í bingó, búið til hljóðfæri, unnið verkefni í tengslum við rúnir og matinn sem borðaður var í gamla daga og börnin bjuggu meðal annars til smjör og rúgbrauð. Börnin heimsóttu einnig Víkingaheima og Byggðasafnið. Vikan heppnaðist mjög vel, börnin og starfsfólk höfðu gaman af henni og eftir situr ekki bara góður fróðleikur heldur góð kynni á milli skólastiga.

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.