23. janúar 2009

Þorraþema lokið

Þorraþema lokið

Þá er þemadögum um þorrann lokið og afraksturinn hreint ótrúlegur. Þemavikan hófst á miðvikudaginn síðastliðinn og stóð yfir í þrjá daga. Nemendur fengu að velja sér stöðvar og fengu allir að taka þátt í því vali sem þeir settu efst á listann. Árgöngum var blandað saman í hópa og fór hver hópur á þrjár stöðvar og vann ýmis verkefni. T.d. var farið í glímu, gamla leiki, hlaðnar vörður, unnið í Hávamálum, búin til hálsmenn með rúnaletri, þæfð ull, unnið með gamaldags mat, vopn voru búin til svo fátt eitt sé nefnt. Þemadögum lauk svo í dag með glæsilegri sýningu á verkefnum nemenda þar sem þeir m.a. sýndu polkadans, leikrit um Þrymiskviðu, lásu ljóð úr Hávamálum og hvernig landnámsbústaður Eiríks rauða var gerður. Enn er hægt að sjá baðstofuna í Narfakotshjáleigu (þar sem 8-9 bekkur er).

Takk fyrir frábæra viku og góða helgi.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla