Þróunarverkefni
Þróunarverkefni í samvinnu við Fjölbrautarskóla Suðurnesja fór af stað í Akurskjóli þriðjudaginn 27. janúar. Verkefnið felst í því að stúlkur úr FS koma til okkar tvisvar í viku og taka þátt í starfinu okkar. Þær koma til með að vinna með okkur verkefni sem börnin hafa ákveðið og síðan koma þær með verkefni sem þær hafa ákveðið að gera.  Verkefnin verða mótuð eftir áhugasviði beggja. Fyrsta daginn fórum við í íþróttahúsið og lékum okkur saman með sippubönd og bolta. Það var ánægjulegt að sjá hvað börnunum fannst þetta spennandi að fá þessar ungu stúlkur til okkar. Myndir eru í myndasafni Akurskjóls.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


