10. desember 2008

Til foreldra barna í frístundaskóla Reykjanesbæjar

Til foreldra barna í frístundaskóla Reykjanesbæjar

Öll sveitarfélög glíma nú við verulegan samdrátt í tekjum sem mæta þarf með hagræðingu í rekstri. Reykjanesbær leggur áherslu á grunnþjónustu við bæjarbúa á sviði grunnskóla, leikskóla og félagsþjónustu. Óhjákvæmilegt er að endurskoða  aðra þætti í starfi okkar tímabundið, sem við höfum getað boðið með miklum niðurgreiðslum undanfarin ár. Einn þáttur þess er frístundaskóli sem hefur verið í boði að loknum grunnskóladegi. Þrátt fyrir að Reykjanesbær muni áfram niðurgreiða frístundaskóla  er nauðsynlegt að gera  verulegar breytingar sem taka bæði til þjónustu og gjaldskrár.

 

Þar sem dregið verður úr niðurgreiðslu bæjarins til frístundaskóla frá  áramótum, verður mánaðargjaldið sem foreldrar greiða 14.400 kr. Reykjanesbær  ber þó enn um fjórðung kostnaðar við þennan rekstur. Daglegur starfstími verður til kl.17.00 til vors.  Æfingagjald verður ekki innifalið í greiðslu foreldra og ekki verður unnt að bjóða  akstur á æfingar eða íþróttaskóla fyrir 1. bekkinga. Í stað þess verða boðið upp á hreyfistundir í skólanum 2-3 í viku og aðstoð við heimanám eins og kostur er. 

 

Gert er ráð fyrir að þessi breyting taki gildi 1. janúar 2009.

 

                                                                   &n

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla