10. ágúst 2012

Til foreldra nemenda í 1. bekk

Til foreldra nemenda í 1. bekk Ágætu foreldrar nemenda í 1. bekk

Við í Akurskóla hlökkum mikið til að fá börnin ykkar í skólann og viljum minna á skólasetninguna miðvikudaginn 22. ágúst kl. 13:00. Á skólasetningunni fáið þið bókaðan viðtalstíma fyrir fimmtudaginn 23. ágúst en þá eruð þið boðuð í viðtal til umsjónarkennara ásamt barni ykkar. Starfsfólk Frístundaskóla verður á staðnum á meðan á viðtölum stendur og hvetjum við ykkur sem ætlið að nýta ykkur þá þjónustu til að ræða við það.

Hefðbundin kennsla samkvæmt stundaskrá hefst hjá 1. bekk föstudaginn 24. ágúst.

Með vinsemd og virðingu


Stjórnendur Akurskóla
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla