Tónleikar í dag
Í dag voru minni tónleikar í öllum grunnskólum bæjarins, þar sem lúðrasveitin kom fram ásamt 7 ára nemendum hvers skóla og spiluðu fyrir 1. -3. bekk. Á morgun, miðvikudag 1. apríl rennur upp árlegur viðburður hjá börnum í 2. bekkjum Reykjanesbæjar, en það eru forskólatónleikarnir, þar sem öll 7 ára börn í öllum skólum bæjarins halda saman tónleika með Mið-Lúðrasveit Tónlistarskólans í Íþróttahúsi Njarðvíkur kl. 19:30 (Mæting 19:15).   Börnin okkar í ár eru búin að æfa lögin Blokklingana og Blokkflauturokk af hjartans lyst og syngja og spila þar að auki 3 önnur lög, lögin Mamma Pakita, Hljómsveitin og Kvæðið um fuglana.  Myndir af tónleikunum í dag eru í myndasafni.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


