28. október 2008

Tónlist fyrir alla

Tónlist fyrir alla

Í dag fengum við í heimsókn góða gesti því til okkar kom Djasskvartett Reykjavíkur á vegum verkefnisins „Tónlist fyrir alla“. Kvartettinn skipa þeir Sigurður Flosason, saxófónn, Eyþór Gunnarsson, píanó, Tómas R. Einarsson, kontrabassi og Gunnlaugur Briem, trommur.

Þeir félagar hafa á undanförnum árum komið fram á fjölda tónleika í skólum um land allt og nú var komið að okkur. Á tónleikunum sem þeir nefndu „Ég hef taktinn“ léku þeir fjölbreytta efnisskrá, djass-„standarda“ eftir erlenda höfunda ásamt íslenskum og erlendum alþýðulögum. Má þar til dæmis nefna, I got rythm eftir Gershwin, Kvæðið um fuglana eftir Atla Heimi Sveinsson og norsk/íslenska þjóðlagið Siggi var úti. Kvartettinn vildi með dagskrá sinni leggja áherslu á að djassinn er skemmtileg, fjölbreytt og aðgengileg tónlist og að færa megi hvaða tónlist sem er í djassbúning.

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla