Ummálið er málið
Undanfarið höfum við verið að æfa okkur í að finna ummál ýmissa hluta en líka ummál okkar sjálfra. Kiðlingar brugðu sér út á skólalóðina með málbandið að vopni og mældu bókstaflega allt sem fyrir varð. Krakkarnir voru  búnir að útbúa sér litlar bækur til að skrá niður og teikna í það viðfangsefni sem þeir völdu, sem voru bæði lítil og stór. Í sumum tilfellum dugði ekki eitt málband svo þá þurfti að grípa til hugvitsins, hvernig átti að leysa málið.  Það vantaði ekki áhugann eins og sjá má af myndunum sem hægt er að skoða í tengslum við þessa vinnu.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


