"Undir berum himni" lokið
Nú er þemavikunni  „Undir berum himni“ lokið. Mikið er búið að vera gerast hjá krökkunum og hafa þau verið mikið úti. M.a hefur verið farið í göngutúra, útileiki, grillað, málað og margt fleira.
Nemendur í 1.-3. bekkjum unnu að veðurathugunum, skoðuðu plöntur og skordýr, könnuðu fuglalíf við tjarnirnar og við fjöruna.  Síðan var eldað snúið brauð, nanbrauð og poppað popp á báli.
Nemendur í 4.-6. bekk unnu einnig að veðurathugunum, hlustuðu og bjuggu til þjóðsögur, bjuggu til ferðaskrifstofu og máluðu Íslandskortið fyrir framan aðalinnganginn. Týndu rusl og endurnýttu það og jafnframt fegruðu umhverfið.
Þá var hjá elstu nemendunum í  7.-9. bekk unnið að steinalist, lærðu fyrstu hjálp og grilluðu snúið brauð yfir báli. Einnig var hópur frá 8.-9. bekk að vinna að verkefninu virkjum vísindi keppnina  sem við erum gestgjafar fyrir í næstu viku og jafnframt keppendur.
 Allt heppnaðist vel  og endaði  þemavikan á grilluðum pylsum í boði Skólamatar og var afrakstur vikunnar  til sýnis í dag jafnt innan sem utan skólans. 1.-3. Bekkur buðu upp á grillað nanbrauð og popp )
 Hægt að sjá myndir á myndasíðu skólans undir þemaviku.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


