Undirbúningur fyrir nýtt skólaár.
Nú styttist í skólabyrjun og undirbúningur fyrir skólastarf Akurskóla næsta vetur er nú á lokastigi. Skóladagatal og innkaupalistar fyrir skólárið 2011- 2012 eru nú aðgengilegir á heimasíðunni. Mikilvægt er að tilkynna nýja nemendur í skólahverfinu hjá ritara skólans eða skrá þá á mittreykjanes.is. Skólasetning verður mánudaginn 22. ágúst. Nánari tímasetningar munu birtast á heimasíðunni og í héraðsblöðum á næstu dögum. Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst þriðjudaginn 23. ágúst. Skrifstofa skólans er opin frá 8:30 - 15:00 fram að skólasetningu, sími: 420-4550.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


