19. ágúst 2026

Upphaf skólastarfs Akurskóla haustið 2026

Upphaf skólastarfs Akurskóla haustið 2026

Skólastarf í Akurskóla hefst á ný þriðjudaginn 25. ágúst 2026. 

Fyrsti skóladagurinn er skertur dagur og er ætlaður fyrir hópefli og undirbúning fyrir veturinn.

Nemendur í 1. bekk mæta kl. 8:20 á sal með foreldrum sínum á skólasetningu og halda svo í stofur með kennurum sínum til kl. 11:00.

Nemendur í 2. - 7. bekk mæta kl. 8:20 og nemendur í 8. - 10. bekk mæta kl. 8:30. Skóla lýkur kl. 11:00 hjá öllum árgöngum. 

Frístund opnar kl. 11:00 fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir. 

Við hlökkum til að hefja nýtt og spennandi skólaár 2026-2027. 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla