21. febrúar 2022

Upplestrarkeppni á sal

Upplestrarkeppni á sal

Í dag, 21. febrúar var Stóra upplestrarkeppnin haldin á sal Akurskóla.

Það er 7. bekkur sem tekur þátt í þessari keppni og voru það 7 nemendur sem tóku þátt en þann 9. febrúar var haldin bekkjarkeppni þar sem þessir 7 nemendur unnu sér rétt til þátttöku á sal.

Keppnin tókst einstaklega vel þar sem allir nemendur höfðu undirbúið sig vel, bæði í skólanum og líka heima fyrir. Nemendur lásu hluta af sögunni Jörgen Moesvegur og komu síðan aftur upp og lásu ljóð að eigin vali.

Dómarar í keppninni í ár voru þau Lára Guðmundsdóttir, fyrrverandi skólastjóri, Gunnar Þór Jónsson fyrrverandi skólastjóri og Hrafnhildur Hilmarsdóttir, fyrrverandi kennari.

Sigurvegarar í keppninni fá keppnisrétt á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem fer fram í Hljómahöll 3. mars. Sigurvegarar í Akurskóla voru þær Júlía Sól Héðinsdóttir og Ásta Dís Óladóttir. Linda Líf Hinriksdóttir og Kári Ásmundsson voru svo valin sem varamenn þeirra. Þau fjögur muna halda áfram að æfa og undirbúa sig fyrir lokakeppnina.

Fleiri myndir í myndasafni skólans. 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla