Upplestrarkeppni Akurskóla
Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Akurskóla var haldin miðvikudaginn 18. febrúar en Stóra upplestrarkeppnin er haldin í 7. bekk í öllum grunnskólum landsins. Í dag lásu 11 nemendur upp texta og ljóð af eigin vali og voru tveir nemendur valdir úr hópi þeirra og munu þeir taka þátt í Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í Reykjarnesbæ sem haldin verður í Bíósal Duushúsa 9. mars kl. 16:30. Fulltrúar Akurskóla í þeirri keppni verða þau Sóley Þrastardóttir og Adam Sigurðsson. Hlutu þau bókaverðlaun frá Forlaginu en allir keppendur fengu viðurkenningarskjal fyrir þátttökuna. Við óskum þeim til hamingju um leið og við þökkum öllum nemendum 7. bekkja fyrir sína þátttöku.
Sjá má myndir í myndasafni 2008-2009
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


