Upplestur
Síðustu daga höfum við verið að æfa upplestur á sal. Þau börn sem fara í 7. bekk næsta vetur taka þátt í stóru upplestrarkeppninni og er þetta því góð æfing fyrir þau og auðvitað líka alla hina í að koma fram og flytja efni í pontu.
Á þriðjudag lásu börnin upp ljóð sem þau höfðu valið sér eða samið sjálf, á miðvikudag lásu þau upp frumsamda sögu um skróp og í dag, fimmtudag, sögðum við eða lásum upp brandara og skemmtum okkur konunglega í leiðinni.
Hláturinn lengir lífið segir máltækið og það er alveg á hreinu að nemendur lögðu sitt af mörkum til að gera það að veruleika í dag.


Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


