Upprennandi rithöfundar
Í þessari viku hafa Kópar verið önnum kafnir við skrifa sögur. Verkefnið hófst á því að þau ákváðu aðalpersónu í sögu og bjuggu hana til (dúkkulísu). Það var lögð mikil vinna í að teikna persónuna, sníða föt á hana og ákveða hvernig hárið átti að vera. Þá hófst vinnan við að búa til sögu um persónuna og eins og alltaf komu margar góðar hugmyndir hjá krökkunum. Í sumum sögunum birtust dýr og þurfti þá að búa þau til og láta fylgja sögupersónunni. En myndirnar segja meira en mörg orð.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


