30. ágúst 2010

Uppskera í Akurskóla

Uppskera í Akurskóla

Í síðustu viku voru teknar upp kartöflur úr smá reit við Akurskóla. Nemendur og kennarar í 2.-3. bekk ásamt kennara úr vísinda-smiðju sáu um að taka upp kartöflurnar.  Í tímanum á eftir sá vísindasmiðjuhópurinn um að telja, vega og flokka kartöflurnar eftir stærð.  Uppskeran var 496 kartöflur sem vógu 11,3 kg.   Nemendur voru ánægðir með afraksturinn og ætla vissulega að sá kartöflum aftur í vor. 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla