Uppskeruhátíð í lok Þorraþema
Í dag lauk þorraþema 1. bekkja Akurskóla og elstu deilda leikskólanna Akurs og Holts með því að krakkarnir bökuðu rúgbrauð og bjuggu til sviðasultu sem þeir snæddu síðan með hangikjöti. Krakkarnir á Akri fluttu þulu og Hvolpar sungu Þorraþrælinn en síðan sungu krakkarnir allir saman nokkur lög. Þetta var uppskeruhátíð þemadaganna sem hafa staðið yfir síðan á þriðjudag. Þessi dagar hafa verið mjög ánægjulegir og lærdómsríkir en meðal annars var farið í vettvangsferðir á byggðasafnið í Innri-Njarðvík og í Stekkjarkot, þæft, farið í gamla leiki og leikið með leggi og skeljar auk fyrrnefndrar rúgbrauðs- og sviðasultugerðar.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


