18. apríl 2012

Út í góða veðrið

Út í góða veðrið
Þegar veðrið er svona dásamlegt storma Kálfar og Kópar út til að skoða lífríkið sem er hér rétt við skólann okkar. Fyrsta dýrið sem við hittum á leið okkar var lóa og við skriðum eftir grasflötinni til að reyna að skoða hana vel. Við vorum nokkuð viss um að hún væri að athuga með hreiðurstæði. Svo var haldið áfram niður að tjörnunum og þar voru smáfuglar úti í hólma, örugglega að búa til hreiður. Við sáum líka fullt af grágæsum og einhverjar höfðu skitið á göngustíginn, okkur fannst það nú ekki alveg nógu gott en þeim var nákvæmlega sama. Tjarnirnar voru líka fullar af hornsílum sem voru ótrúlega snögg að synda, margur hefði viljað vera með háf og krukku en það verður vonandi seinna. Á leið okkar niður í fjöru urðu margir og merkilegir dýrgripir eins og sjá má á meðfylgjandi myndum, t.d. gullskrúfa, krabbi (dauður), hitakútur, járn sem mjög gott er að eiga, fallegir steinar og skeljar og hauskúpa af fiski með rosalega margar tennur og sumar mjög beittar. Þessi skóladagur var alls ekki nógu langur fyrir okkur, fullt sem við áttum eftir að kanna betur og skoða nánar en sem betur fer kemur dagur eftir þennan.
Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla