16. september 2011

Útikennslusvæði rís við Narfakotsseylu

Útikennslusvæði rís við Narfakotsseylu

Akurskóli og leikskólarnir Holt og Akur hafa tekið höndum saman og vinna nú að uppbyggingu útikennslusvæðis við Narfakotsseylu í Innri-Njarðvík. Þetta er þróunarverkefni sem hlaut styrki úr Manngildissjóði Reykjanesbæjar vorið 2009. Síðan þá hafa leik- og grunnskólanemendur ásamt starfsmönnum unnið hörðum höndum að undirbúningi svæðisins. Hópurinn hefur fengið Guðmund Hrafn Arngrímsson landslagsarkitekt til liðs við sig. Hann hefur hannað svæðið og útfært hugmyndir nemendanna á skemmtilegan og frumlegan hátt.

Útikennslusvæði eru skilgreind sem svæði í náttúrunni þar sem fjölbreytt nám og kennsla á sér stað. Útinám getur nýst í öllum námsgreinum grunnskólans, sem og námssviði leikskóla. Útikennslusvæðið verður aðgengilegt, náttúrulegt og nýtanlegt á umhverfisvænan hátt. Það mun nýtast nemendum, kennurum og íbúum svæðisins jafnt til náms og leiks.

Hugmyndin er sú að nemendur og fjölskyldur þeirra taki virkan þátt í þessari uppbyggingu undir leiðsögn kennara og ábyrgðarmanna verkefnisins í góðu samstarfi við Umhverfis- og skipulagssvið Reykjanesbæjar. Einnig höfum við fengið liðsstyrk frá SEEDS samtökunum, sem eru sjálfboðaliðar sem sinna ýmsum umhverfis- og menningarmálum hér á landi. Tíu sjálfboðaliða eru að vinna með okkur að verkefninu nú september og aðstoða okkur við að hefja verkefnið en eftir það munu nemendur og starfsfólk í góðri samvinnu við foreldrasamfélagið halda áfram uppbyggingunni.

 

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla