Útivist og hreyfing
Nemendur í útivist og hreyfingu sem er val í 8. og 9. bekk fengu leiðsögn í að tjalda stóru eldhústjaldi á skólalóð Akurskóla. Pétur Gunnarsson leiðbeinandi námskeiðsins veitti nemendum leiðsögn í því hvernig slík tjöld eru notuð fyrir stóra ferðahópa í útivistar- og hálendisferðum á Íslandi. Síðan var kveikt upp með ferðaeldunartækjum og nemendur hituðu upp pylsur og poppuðu poppmaís. Nemendur fengu fræðslu um hvernig nesti er best fyrir fjallaferðir, hvers konar matvæli og áhöld til eldunar henta best. Að ýmsu þarf að huga eins og hvað sé létt að bera og hvaða fæðutegundir gefa mesta orku með tilliti til þyngdar og rúmmáls. Sjá fleiri myndir í myndasafni.



Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


