8. júní 2023

Útskrift og skólaslit vorið 2023

Útskrift og skólaslit vorið 2023

Skólaslit Akurskóla fóru fram miðvikudaginn 7. júní og fimmtudaginn 8. júní.

Nemendur í 10. bekk voru útskrifaðir 7. júní við hátíðlega athöfn. Nemendur og aðstandendur þeirra mættu í íþróttahúsið þar sem Eyþór Snorri Ragnarsson spilaði á píanó í upphafi athafnar og Lena Katarzyna spilaði einnig á píanó á milli atriða.

Sigurbjörg Róbertsdóttir skólastjóri flutti ávarp, Elvar Ásmundsson formaður nemendafélagsins flutti ræðu, Katla María Riley, Lucja Grazyna Oscilowicz og Lovísa Rós Sigtryggsdóttir fluttu ávarp fyrir hönd nemenda.  Umsjónarkennararnir Dóra Hanna Sigmarsdóttir og Sigríður H Ragnarsdóttir töluðu til nemenda, afhentu vitnisburð og Akurskólatrefilinn til minningar um veru nemenda í Akurskóla. Sigurbjörg afhenti svo hverjum og einum rós. Eftir athöfn var nemendum, aðstandendum og starfsmönnum boðið til veglegrar veislu á sal skólans sem starfsmenn skólans höfðu undirbúið.

Að venju voru veittar viðurkenningar við útskrift nemenda. Eftirfarandi nemendur hlutu viðurkenningar:

Elvar Ásmundsson hlaut viðurkenningu framúrskarandi námsárangur og góð störf í þágu nemenda og fékk bókina Hjarta Íslands frá Lionsklúbbnum í Njarðvík.

Erla Núpdal Róbertsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir mjög góðan námsárangur og fékk bókina Hjertestorm frá Danska sendiráðinu.

Jakob Elí Thomsen hlaut viðurkenningu fyrir góðan námsárangur, samviskusemi og dugnað í námi og fékk bókina Dýrin frá Eymundsson.

Katla María Riley hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur og fékk bókina Perlur í náttúru Íslands frá Kölku.

Lovísa Rós Sigtryggsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir miklar framfarir, samviskusemi og dugnað í námi og fékk bókina Íslensk öndvegisljóð frá Lionsklúbbnum Æsu.

Lucja Grazyna Oscilowicz hlaut viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsárangur og fékk bókina Maðurinn frá UMFN.

Soffía Huld Ævarsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan námsárangur og fyrir að vera jákvæður leiðtogi og fékk Spakmælabókina frá Lionsklúbbnum í Njarðvík.  

Nemendur í 1. – 9. bekk mættu svo á skólaslit í íþróttahús Akurskóla kl. 9.00 fimmtudaginn 8. júní. Lena Paulina  og Lena Katarzyna fluttu tónlistaratriði, Sigurbjörg skólastjóri flutti ávarp og sleit síðan skóla. Nemendur fóru svo með kennurum sínum í stofur þar sem umsjónarkennarar lásu upp hrósskjöl nemenda og afhentu vitnisburð.

Við óskum nemendum og fjölskyldum þeirra gleðilegs sumars og hlökkum til að sjá alla í haust.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla
denser.ai