Vegna Alviðru
Kæru foreldrar og forráðamenn í 4. og 5. bekk
Takk fyrir frábærar undirtektir.  Nú eru allir foreldrar búnir að svara og starfsfólk Nóa Síríus í óða önn að pakka namminu í poka svo krakkarnir geti farið að selja.  Við munum dreifa 5 pokum á hvert barn í lok skólatíma á morgun, fimmtudag.  Hver poki selst á 1.500 kr. og krakkarnir verða að skila peningunum á þriðjudaginn í næstu viku (þ.e.a.s. 7.500 pr. barn.) Við munum  koma upp í skóla á þriðjudaginn og safna saman peningunum svo hægt verði að borga ferðirnar hjá öllum þremur hópunum.  Foreldrafélagið mun síðan styrkja hópinn um það sem upp á vantar.
Endilega hvetjið krakkana til að hjálpast að við að ganga í hús og selja ef vinir og vandamenn duga ekki til.  Ef einhverjar spurningar vakna þá getið þið hringt í mig s: 8209312  (Jóna Guðrún) eða sent mér tölvupóst jonagj@internet.is
Jóna Guðrún og Inga Birna (mömmur í Hnísum og Háhyrningum)
 
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


