Vel heppnaðri árshátíð lokið í Akurskóla
Fimmtudaginn 19. mars og föstudaginn 20. mars var árshátíð í Akurskóla. Undanfarnar vikur hafa nemendur og starfsfólk unnið hörðum höndum við undirbúning, bæði við skreytingar og atriði. Í ár var þemað Disney.
Nemendur í 7.-10. bekk riðu á vaðið og héldu sína árshátíð fimmtudagskvöldið 19. mars. Voru fjölbreytt og skemmtileg atriði eins og Disney lagasyrpa, hæfileikakeppni og spurningakeppni. Rúsínan í pylsuendanum var hið árlega myndband 10. bekkjar þar sem útskriftarnemendur okkar gera upp skólagöngu sína. Kynnar voru Birkir Aron Mikaelsson og Arnar Bent Finnsson nemendur úr 10. bekk.
Að loknum atriðum voru foreldrar og aðrir áhorfendur sendir heim og DJernirarnbergz þeytti skífum við mikla gleði. Einnig komu leynigestir en það voru Maron Birnir og tveir fyrrum nemendur úr Akurskóla þeir Jóhann Guðni og Viktor Þórir en þeir tóku eitt lag.
Föstudaginn 20. mars fengu síðan yngri nemendur að láta ljós sitt skina en voru það nemendur í 1.-3. bekk sem hófu hátíðina. Þar mátti sjá hinar ýmsu Disney-verur eins og Simba og Þyrnirós. Einnig var sungið um vináttu að hætti Vidda og Bósa. Kynnar voru Viktor Kári Garðarsson og Aldís Emma Guðmundsdóttir nemendur úr 3. bekk. Eftir atriðin gæddu gestir sér á ljúffengri köku.
Næsta hátíð var hjá 4.-6. bekk og slógu þau botninn í árshátíðarvikuna. Ekki var þessi hátíð síðri en hinar og átti Lion King og Toy Story senuna. Kynnar voru Guðný Anna Bjarnadóttir, Símon Karl Albertsson og Harpa Mjöll Jónsdóttir nemendur í 6. bekk. Eftir atriðin fengu allir sér köku sem rann ljúft niður.
Árshátíðarvikan hefur verið frábær og afraksturinn einstaklega glæsilegur. Nemendur geta verið stoltir af frammistöðu sinni en á svona viðburðum eru miklir sigrar og mikið reynt á hugrekkið.
Takk fyrir frábæra árshátíð.
Myndir frá árshátíðinni eru í myndasafni skólans.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


