10. júní 2025

Vel heppnaður Sumarmarkaður Akurskjóls

Vel heppnaður Sumarmarkaður Akurskjóls

Sumarmarkaður Akurskjóls var haldinn í fyrsta sinn þann 28. maí. 

Á markaðnum mátti finna mikið úrval af handgerðum munum sem börnin höfðu unnið af natni og alúð. Eitt barnanna kom með þá hugmynd að selja einnig happdrættismiða og popp sem varð að veruleika. 

Góð mæting var á markaðinn og gestir sýndu verkefninu mikinn áhuga. Árangurinn fór fram úr björtustu vonum og þegar allt var talið skilaði markaðurinn yfir 200 þúsund krónum. Börnin fengu sjálf að velja hvert féð skyldi renna og völdu þau Barnaspítala Hringsins sem styrktarþega.

"Við erum afar stolt af börnunum okkar og þeirra framtaki," sagði Björgvin forstöðumaður frístundaskólans. "Þau hafa sýnt að með samstilltu átaki er hægt að gera góða hluti fyrir samfélagið. Þetta verkefni kenndi þeim ekki aðeins handverk og sölu heldur líka mikilvægi þess að hjálpa öðrum."

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla