1. október 2010

Verið velkomin í heimsókn í Akurskóla þriðjudaginn 5. október í tilefni Alþjóðadags kennara

Verið velkomin í heimsókn í Akurskóla þriðjudaginn 5. október í tilefni Alþjóðadags kennara

Við ætlum að opna skólann fyrir foreldrum og öðrum velunnurum skólans í tilefni Alþjóðadags kennara 5. október frá kl. 8.10-12.00. Lagt er upp með að gestir fái skýra mynd af starfi kennarans og því verður kennsla með hefðbundnum hætti líkt og á venjulegum skóladegi. Allar kennslustofur verða opnar og kaffi á könnunni. Við vonumst eftir sem flestum!

Víða um lönd nota kennarar þennan dag til að gera sér glaðan dag og vekja athygli á mikilvægi menntunar og skólagöngu með ýmsu móti og nemendur og foreldrar hylla kennara og þakka þeim fyrir framlag þeirra í þágu almennrar velferðar og menntunar. Alþjóðasamband kennara (EI) heldur úti vef um 5. október og á hverju ári er sjónum beint að einu sérstöku málefni þennan dag. Í ár er yfirskriftin „Batinn hefst með kennurum“ sem vísar til þess að kennarinn er miðlægur í félagslegri, hugmyndafræðilegri og efnahagslegri endurreisn samfélagsins eftir kreppu - og einnig eftir náttúruhamfarir og styrjaldir.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla