Verið velkomin í skólann
Kæru nemendur
Verið velkomin aftur í skólann.  Í vetur munum við Heiðrún Björk, Sigrún Bryndís og Svenni, ásamt Ósk og Elísabetu sjá um 4.-5. bekk í Akurskóla.
Fyrstu dagana í skólanum munum við nota til að kynnast betur, fara yfir helstu reglur, koma skipulagi á skólabækur og kennslurými.  Við munum einnig nota síðustu daga sumarsins til útiveru.  Svo verður líka slegið á létta strengi og farið í leiki og fleira skemmtilegt.
Hlökkum til að sjá ykkur á mánudaginn.
Umsjónarkennarar og stuðningsfulltrúar.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


