Vettvangsferð
Nemendur í Kálfa- og Kópahópnum eru að byrja á verkefni sem heitir Komdu og skoðaðu hvað dýrin gera og hófst vinnan á ferð í Narfakotsseylu. Meðan á göngunni stóð höfðu nemendur auga með dýrum sem þau gætu hugsanlega séð en síðan héldu þau áfram að skoða umhverfið í Narfakotsseylu og hvaða dýr væru þar. Krakkarnir sáu þó nokkuð af dýrum, skráðu þau niður, jafnvel teiknuðu myndir af þeim. Dýrin voru líka talin og spáð í hvað þau hefðust að. Áhuginn leyndi sér ekki hjá krökkunum eins og sjá má á myndunum. Svo fundu þau heilmikið af mjög athyglisverðum hlutum, skeljum, kuðungum og fuglahausa. Þessir hlutir fylgdu síðan upp í skóla til nánari skoðunar.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


