2. október 2008

Viðtöl

Viðtöl

Kæru foreldrar/forráðamenn 

 

Ætlunin var í byrjun skólaárs að hafa viðtöl við alla foreldra sex ára barna og foreldra nýrra barna sem hófu vistun hjá okkur í Akurskjóli. Það hefur því miður ekki gefist tími til þess fyrr en nú, þar sem starfið var heldur viða meira í byrjun en búist var við.

Viðtölin munu því hefjast í næstu viku og munu foreldrar fá sendan tölvupóst um hvenær þeirra viðtal verður. Það hefur fækkað nokkuð hjá okkur og eru nú orðin 87 börn  í heildina og sjö starfsmenn.

Mikið hefur borið á því að börnin komi illa klædd í Akurskjól og því ekki komist út að leika sér. Við viljum því minna foreldra á að senda börnin klædd eftir veðri og hafa aukaföt í skápum þeirra, ásamt góðum skófatnaði.

Starfið hjá okkur hefur gengið vel síðustu vikur. Börn og starfsfólk Akurskjóls hafa verið að tengjast og vinaböndin verið að styrkjast. Þótt byrjunin hafi verið erfið var hún líka mjög skemmtileg, enda eru frábærir einstaklingar hjá okkur í Akurskjóli. Íþróttakeyrslan er komin á fullt og eru flestir búnir að velja sér íþrótt til að stunda í vetur.

 Íþróttaskólinn hjá sex ára börnunum mun hefjast í næstu viku og verður alla miðvikudaga og fimmtudaga í vetur. Gott er að hafa börnin þægilega klædd þá daga því þau munu ekki skipta um föt fyrir íþróttaskólann.

 

Með von um gott samstarf.

 

Kveðja, starfsfólk Akurskjóls.

 

 

 

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla