29. apríl 2010

Vígsla fuglahúsa

Vígsla fuglahúsa

Nemendur í leikskólunum Akri og Holti og grunnskólanum Akurskóla gengu fylktu liði í föstudaginn sl. að tjörnunum í Innri Njarðvík en þar tóku þau þátt í formlegri vígslu á nýjum fuglahúsum sem komið hefur verið fyrir í hólmunum við tjarnirnar, fuglunum og jafnframt börnum og fjölskyldum þeirra til ánægju og yndisauka. Gerð fuglahúsanna er afrakstur íbúafunda bæjarstjóra með grunnskólanemendum sl. haust en þar var m.a. óskað eftir þeirra tillögum og hugmyndum að slíkum húsum en gerð húsanna var í höndum félagsins Einstakra. Það er hlustað á raddir barna í bænum okkar eins og sjá má af þessu framtaki og með þessari frábæru barnahátíð sem stóð yfir í bænum okkar síðustu helgi.  Krakkarnir sungu sumarlög í tilefni dagsins en vígsla fuglahúsanna var liður í dagskrá Barnahátíðar í Reykanesbæ. Nú verður fróðlegt að sjá hvað fuglunum við tjarnirnar finnst um þetta nýja húsnæði en nemendurnir munu fylgjast vel með því í framtíðinni.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla