4. júní 2008

Virkjum vísindin og hugvitið hjá unga fólkinu

Virkjum vísindin og hugvitið hjá unga fólkinu

Nemendur í 7. bekk tóku þátt í keppninni Virkjum vísindin og hugvitið hjá unga fólkinu, sem haldin var í Akurskóla í gær. Liðið sem kallaði sig Pulsurnar stóð sig vel og liðið fékk verðlaun fyrir frumlegustu lausnina. Pulsurnar bjuggu til vindvirkjun sem var keyrð áfram með hjálp viftu og ryksugu. Keppnin heppnaðist í alla staði vel og krakkarnir okkar voru til fyrirmyndar.

 

Akurskóli, Gerðaskóli og Stóru – Vogaskóli hlutskörpust í vísindakeppni.

Vísindakeppni grunnskólanna á Suðurnesjum ,,Virkjum vísindin og hugvitið hjá unga fólkinu”  var haldin öðru sinni í Akurskóla síðastliðinn þriðjudag. Keppnin sem er fyrir grunnskólanemendur er samstarfsverkefni Hitaveitu Suðurnesja, Norðuráls og fræðsluskrifstofu Reykjanesbæjar.

Áhugi og einbeiting skein úr hverju andliti og greinilegt að unga fólkið hafði lagt mikla vinnu í  undirbúning keppninnar. Að þessu sinni áttu þátttakendur að hanna virkjun sem framleiddi rafmagn. Þátttakendur hafa notið aðstoðar raunvísindakennara í skólunum. Til keppninnar mættu til leiks  Akurskóli, Gerðaskóli, Heiðarskóli, Njarðvíkurskóli og Stóru-Vogaskóli. Þátttakendur leystu verkefnin á ýmsan hátt. Markmiðið var að kveikja sem flest ljós á 10 díóðu perustæði. Tveir skólar bjuggu til líkan af  vatnsfallsvirkjun, tveir skólar bjuggu til virkjun þar sem þeir knúðu hjól áfram af krafti og einn skóli hannaði vindmyllu. Skólarnir notuðu ýmist ,,dynamó” eða ,,altanator” sem rafal til að breyta hreyfiorku í rafsegulorku.

Veitt voru verðlaun í fjórum flokkum. Fyrir frumlegustu lausnina fékk lið Akurskóla viðurkenningu. Fyrir hönnun virkjunar fékk lið Gerðaskóla viðurkenningu. Besta rannsóknarverkefnið var valið frá liði Stóru-Vogaskóla sem einnig fékk viðurkenningu fyrir virkni búnaðar. Allir þátttakendur fengu verðlaunapening fyrir þátttöku en auk þess fengu verðlaunahafar verðlaunagripi sem gerðir eru úr hverfilblaði, til eignar. Keppnin heppnaðist afar vel og komu þátttakendur frá Gerðaskóla með skemmtiatriði en veitingar voru í boði Skólamatar. Dómnefnd skipuðu Axel Sölvason, Ásgeir Long og Oddný Harðardóttir en yfirdómari var Eiríkur Hermannsson. Meðfylgjandi myndir eru frá keppninni.

 

Jónína Ágústsdóttir, verkefnisstjóri

 

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla