Vísindakeppnin ,,Virkjum vísindin og hugvitið hjá unga fólkinu" fór fram í Akurskóla 14. maí.
Í ár áttu nemendur að hanna bát sem þurfti að uppfylla ákveðin skilyrði. Veitt voru fern verðlaun, en það var liðið Kúlíó úr Akurskóla sem fékk verðlaun fyrir frumlegasta bátinn, Tropic Thunder úr Stóru-Vogaskóla fékk verðlaun fyrir hönnun og virkni báts og The Dinos úr Heiðarskóla fékk ferðlaun fyrir besta tíma bátsins en auk þess fékk liðið verðlaun fyrir keppni í eðlisfræðiþrautum sem kennarar úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja lögðu fyrir nemendur. Það voru síðan The Mills úr Myllubakkaskóla sem unnu reiptogið, en þar var kaðall strengdur yfir sundlaugina þannig að það lið sem tapaði endaði ofan í lauginni.
Þeir sem standa að þessari keppni fyrir ungviðið á Suðurnesjum eru Fræðsluskrifstofa Reykjanesbæjar, Norðurál og Hitaveita Suðurnesja. Þátttaka var mjög góð en alls tóku 85 nemendur úr öllum grunnskólum Reykjanesbæjar, auk nemenda úr Stóru-Vogaskóla, þátt í keppninni. Keppnin í ár var þrískipt, í fyrsta hluta hennar áttu nemendur að hanna bát sem kæmist undir eigin vélarafli þvert yfir sundlaugina sem er 9 metrar, þá voru verðlaun veitt fyrir hönnun, frumlegheit og virkni bátanna. Sú nýbreytni að setja upp stöðvar með ýmsum eðlisfræðitilraunum tókst mjög vel. Það má segja að mikil gleði og spenna hafi ríkt í íþróttamiðstöðinni við Akurskóla og viljum við koma þakklæti til allra sem lögðu okkur lið, kennurum og starfsmönnum og ekki síst Skólamat sem bauð öllum þátttakendum upp á brúnköku og drykk.
Hægt er að skoða myndir úr keppninni inn á myndasíðu Akurskóla
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


