12. júní 2026

Vitnisburður og námsmat aðgengilegt á Mentor

Vitnisburður og námsmat aðgengilegt á Mentor

Nú þegar líður að lokum skólaársins er allt námsmat nemenda aðgengilegt foreldrum og forráðamönnum á Mentor.

Í Akurskóla byggir námsmat á hæfniviðmiðum Aðalnámskrár grunnskóla. Hæfniviðmiðin lýsa þeirri hæfni sem nemendur eiga að tileinka sér í hverri námsgrein og eru meginviðmið við matið. Þau segja til um hvaða hæfni nemendur þurfa að sýna við lok 4., 7. og 10. bekkjar.

Námsmat fer fram jafnt og þétt yfir skólaárið þar sem fylgst er með framförum nemenda. Verkefni og próf eru hluti af námsferlinu og nemendur fá reglulega endurgjöf á vinnu sína. Með því móti fá þeir skýra mynd af eigin stöðu og tækifæri til að bæta sig jafnt og þétt.

Hægt er að skoða námsmat í smáforriti Mentor í snjalltækjum en ítarlegri upplýsingar má nálgast á vefnum www.mentor.is. Þar birtist námsmat nemenda ásamt hæfnikortum sem byggja á þeim viðmiðum sem liggja til grundvallar í hverri námsgrein.

Á vef Mentor er að finna flís sem kallast „Mín mappa“. Þar er hægt að sækja vitnisburð nemenda á PDF-formi. Þá er einnig grá flís sem kallast „Námsmat“ þar sem hægt er að nálgast öll hæfnikort nemanda. Neðst í hægra horni er blár hringur,  þar sem hægt er að sækja skýrslu með mati á öllum hæfniviðmiðum nemandans.  

Niðurstöður úr Lesferli og Matsferli má finna á Ísland.is. Foreldrar og forráðamenn skrá sig inn á Mínar síður, velja þar Menntun, svo Grunnskóli og loks nafn barnsins til að sjá niðurstöður úr stöðu- og framvinduprófum.

Nánari upplýsingar um námsmat í Akurskóla má finna í kynningarefni skólans:
👉 https://www.canva.com/design/DAGwDgTgYZI/V5K_BHFdo6qjYNbkSql6tg/view

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla