14. febrúar 2011

VITUND OG VAKNING MEÐAL FORELDRA

VITUND OG VAKNING MEÐAL FORELDRA

Þriðjudaginn 15. febrúar kl. 20.00 í Kirkjulundi, verður námskeið fyrir skólaforeldra í Reykjanesbæ undir yfirskriftinni VITUND OG VAKNING MEÐAL FORELDRA.

Á námskeiðinu fjallar Helga Margrét Guðmundsdóttir um lýðræðislega aðkomu foreldra að skólastarfinu og hvernig foreldrar geta haft áhrif á nám og líðan barna sinna.

Helga Margrét er sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Hún starfaði hjá landssamtökum Heimilis og Skóla í mörg ár og hefur látið sig varða uppeldis- og menntunarskilyrði barna. Helga hefur einnig skrifað pistla og greinar um fjölskyldumál en hún er tómstunda- og félagsmálafræðingur að mennt.

Skólaforeldrar í Reykjanesbæ eru velkomnir á stutt og hnitmiðað námskeið þriðjudaginn 15. febrúar kl. 20.00.

FFGÍR

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla