Vorferð 1. bekkinga
 Fyrst var farið niður í fjöru og þar fengu krakkarnir að skoða og snerta krossfiska og krabba, sem bændurnir á Bjarteyjarsandi höfðu fangað í sjónum fyrir utan. Einnig sáu þau ýmsa fugla, tíndu skeljar og óðu í sjónum. Til að komast í fjöruna þurftu þau að fara í gegnum leynigöng, sem var skemmtilegt og spennandi.  Eftir fjöruferðina var farið í fjárhúsin og allir fengu að halda á lambi, klappa kanínum og leika sér í heyinu.  Að lokum voru grillaðar pylsur. Á heimleiðinni var slakað á, því margir voru orðnir dasaðir eftir útiveruna og sólina á Bjarteyjarsandi. Frábær ferð í alla staði.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


