11. maí 2012

Vorferð 1. bekkur

Vorferð 1. bekkur

Miðvikudaginn 9. maí fóru fyrstu bekkingar í vorferðalag. Förinni var heitið að sveitabænum Bjarteyjarsandi í Hvalfirði. Allir voru mjög spenntir og þó bílferðin væri löng þá leiddist engum. Sérstaklega var gaman að keyra um Hvalfjörðinn og leita að fallega flughvalnum sem við lásum um fyrir stuttu. Á Bjarteyjarsandi er mikill fjárbúskapur og vorum við svo heppin að á meðan við skoðuðum fjárhúsin sáum við tvö lömb fæðast. Mörgum fannst það skrýtin sjón en aðrir horfðu heillaðir á þegar ærin hreinsaði lömbin sín sem stóðu svo upp stuttu síðar og vildu fá að drekka. Í hlöðunni var hægt að klappa kanínum, hestum og lambi og leika sér í heyinu, sem sló í gegn hjá strákunum.

 

Fyrir neðan Bjarteyjarsand er falleg fjara þar sem svo sannarlega er hægt að finna margan fjársjóðinn. Skeljum, steinum og fiskibeinum var safnað og þau tekin með heim. Börnin voru mjög frjáls í fjörunni og fengu að vaða bæði í ánni og í sjónum. Margir urðu vel blautir en allir nutu frelsisins og skemmtu sér vel.

 

Áður en haldið var heim á leið grilluðum við pylsur og nutum sólarinnar. Sannanlega velheppnaður dagur í alla staði.

 

Myndir í myndsafni hægra megin

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla