29. maí 2008

Vorferð 3. - 4. bekkur

Vorferð 3. - 4. bekkur

Kópar og Kiðlingar fóru í sína árlegu vorferð föstudaginn 23. maí. Að þessu sinni lá leið okkar í Reykjanesvirkjun þar sem Víðir Sveins Jónsson tók vel á móti okkur.  Þar fræddumst við um himintunglin, stóra hvell, jarðskjálfta, hljóð úr geimnum og margt fleira.Síðan lá leiðin í Svartsengi þar sem við fengum að vita hvernig jarðsjór er notaður til upphitunar á ferskvatni og framleiðslu á rafmagni.

Við enduðum svo ferðina á því að koma við í Sólbrekkuskógi, grilla pylsur og leita að kanínum. Þrátt fyrir smá rigningarúða var þetta alveg frábær dagur og allir fóru ánægðir heim.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla