Vorferð 4.-5. bekkur
Í dag fórum við í vorferðalag með 4. og 5. bekk. Við byrjuðum á því að fara í Hörpuna þar sem við hlustuðum á Sinfóníuhljómsveit Íslands taka nokkur vel valin lög. Þessi sýning var einstaklega skemmtilega sett upp fyrir krakkana og allir sátu og nutu tónlistarinnar vel.
Eftir tónleikana fengum við að borða nestið okkar í Hörpunni, sem gaf okkur tækifæri á að skoða þessa fallegu byggingu betur.
Svo var ferðinni heitið í Árbæjarsafnið. Þar var hópnum skipt upp í 3 hópa. Við fengum að fræðast um hvernig lífið var í gamla daga. Þetta var allt saman rosalega áhugavert enda muna krakkarnir margt frá því að við lásum bækurnar Ísland áður fyrr í vetur. Í Árbæjarsafninu fengum við frábærar mótökur.
Þess má geta að flottu krakkarnir okkar í 4. og 5. bekk voru frábær í þessari ferð og sýndu prúðmennsku, virðingu og kurteisi.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


