29. maí 2009

Vorferð 8-9 bekkur

Vorferð 8-9 bekkur

Þann 28. maí fórum við á unglingastigi Akurskóla í vorferð í fimleikahúsið Björkina. Við vorum mætt á svæðið  um níuleytið, þar sem umgengnisreglum var lýst í stuttu máli og svo var okkur hleypt inn í salina. Það eru þrír salir, einn mjög stór, einn miðlungs og einn pínulítill. Í stóra salnum voru tveir hópar, einn í klettaklifri og annar á trampólíni, einn hópur var í miðlungsstóra salnum á loftdýnu og köðlum og síðasti hópurinn var inni í litla salnum þar sem var stór svampagryfja, sem var mjög vinsæl. Fyrst áttum við að halda okkur í hópunum og vera á okkar svæði, en eitthvað gekk það nú ekki alveg eftir þannig að það endaði á því að fólk mátti bara gera það sem það vildi. Í hléinu borðuðum við nestið, sumir fóru út í sjoppu og keyptu sér mat eða nammi þar. Eftir hlé héldum við aðeins áfram í sölunum og fórum svo um hálf eitt leytið upp í Heiðmörk og grilluðum pylsur og sumir fóru í skoðunarferð um skóginn. Enginn týndist sem betur fer, en nokkrir voru seinir í rútuna og fengu þeir að kenna á kímnigáfu kennarana, sem lögðu af stað án nemendana. Auðvitað var stoppað smá spöl frá og komust að lokum allir nemendur heilir á húfi í rútuna. Svo lögðum við af stað heim og voru margir þreyttir eftir daginn. Við vorum mætt uppí skóla um hálf þrjú, og þá fóru allir heim.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla