10. maí 2012

Vorferð Þrestir

Vorferð Þrestir

 Þrastahópurinn brá undir sig betri fætinum og skellti sér í dagsferð til Keflavíkur. Hópurinn byrjaði  í Sundmiðstöð Keflavíkur og átti góða stundir þar í veðurblíðunni. Að sundferðinni lokinni fengu krakkarnir sér að borða. Þeir enduðu daginn í Sambíóum þar sem haldin var sýning fyrir hópinn á myndinni Battleship. Hópurinn skemmti sér konunglega og mátti sjá glöggt að það þarf ekki að fara um langan veg til að gleðjast og eiga góða stund saman. Þrestirnir eiga hrós skilið fyrir góða framkomu, kurteisi og prúðmennsku í ferðum á vegum skólans.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla