Vorhátíð
Á mánudaginn, 2. júní nk. verður vorhátíð í Akurskóla. Nemendur mæta í skólann skv. stundatöflu en öll almenn kennsla fellur niður þann dag.  Á skólalóðinni verða fjölbreyttar og skemmtilegar stöðvar í boði, s.s. málningarstöð, spilastöð, boccia, taflkeppni, singstar, íþróttastöð, sundstöð, fótboltastöð og einnig verður hoppukastali og veltibíll í boði.  Lögreglan mun einnig mæta á staðinn og skoða reiðhjól barna og er því tilvalið að koma á hjóli í skólann. Síðan verða grillaðar pylsur og vonandi verða veðurguðirnir góðir þennan dag.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


