3. júní 2020

Vorhátíð

Vorhátíð

Í dag var haldin Vorhátíð hjá okkur í Akurskóla. Allir bekkir fengu sinn lit og kepptu í hinum ýmsu greinum. Það var neglt, hoppað í poka, rennt sér á sápu og kastað stígvéli. Þá var sparkað í bolta, skotið á körfu og slegið í golfbolta. Farið var í þrautabraut, sippað og þrætt perlum á band. Það var mikið fjör og stóðu nemendur sig með prýði.  Í hádeginu renndu allir niður Skólamatspylsum og að lokum kom Hreimur í Landi og sonum og skemmti öllum við mikinn fögnuð. En foreldrafélagið bauð okkur uppá þetta frábæra skemmtiatriði.  Það fóru glaðir nemendur heim syngjandi Lífið er yndislegt.

Hnetur

Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.

  • Reykjanesbær
  • Heimili og skóli
  • Foreldrafélag Akurskóla