Vorhátíð Akurskóla í blíðskaparveðri
Vorhátíð Akurskóla fór fram í dag í góðu og mildu veðri.
Hátíðin hófst á skrúðgöngu þar sem nemendur gengu um hverfið með tónlist og trommuslátt. Að lokinni göngunni dreifðu nemendur sér á milli fjölbreyttra stöðva þar sem þeir gátu spreytt sig í ýmsum greinum.
Þá mættu félagarnir í BMX Brós með skemmtilega sýningu þar sem þeir sýndu listir sínar og færni á hjólunum.
Í hádeginu var svo hið sívinsæla pylsupartý.
Hátíðinni lauk skemmtilegri keppni í skotbolta á milli starfsfólks og 10. bekkjar. Þar var mikið fjör og keppnisskapið leyndi sér ekki en kennarar unnu báða leikina að þessu sinni.
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.


