Fréttir
Háttvísi
Þemadagar hófust hjá nemendum í 2.-10. bekkjum á miðvikudaginn en að þessu sinni er þemað HÁTTVÍSI. Af því tilefni fengum við Bergþór Pálsson í heimsókn sem fræddi nemendur í 6.-10. bekkjum um nauðsyn þess að hafa á valdi sínu fágaða borðsiði og nota þá. Fyrirlestur Bergþórs var afar skemmtilegur og kunnum við honum okkar bestu þakkir fyrir. Þemadö...
Lesa meiraÞorraþema í 1. bekk
Þriðjudaginn 18. janúar hefst þorraþema í 1. bekk, í samstarfi með leikskólunum í hverfinu Holti og Akri. Þetta samstarfsverkefni hefur staðið yfir í 3 ár og vekur alltaf jafnmikla lukku. Þá blandast elsti árgangurinn í leikskólunum og 1. bekkur. Krökkunum er skipt í hópa og vinna hóparnir að ýmsum verkefnum tengd þorranum. Þorraverkefnið endar á f...
Lesa meiraKuldi og blástur
Nýja árið hefur heilsað með hressilegum blæstri og kulda. Gott er að hafa í huga að þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á Suðurnesjum þá fylgjast Lögreglan og Almannavarnir gaumgæfilega með, hafa samstarf við skólana og gefa út viðvaranir til almennings, gerist þess þörf. Mikilvægt er að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og veður...
Lesa meiraÞemaverkefni um Þingvelli
Höfrungar, Hákarlar og Hnísur eru þessa dagana að vinna þemaverkefni í samfélagsfræði um Þingvelli. Stuðst er við bókina Merkir sögustaðir - Þingvellir sem er eftir Þórarin Eldjárn og Námsgagnastofnun gefur út. Nemendur munu vinna alls kyns verkefni um þennan sögufræga stað og eru börnin mjög áhugasöm um efnið....
Lesa meiraJólakveðja
Starfsfólk Akurskóla þakkar fyrir ánægjulegt samstarf á árinu og óskar ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegra jóla og farsæls komandi nýs árs. Megi ljós og friður lifa með okkur öllum....
Lesa meiraLitlu jólin
Allir árgangar Akurskóla héldu litlu jólin hátíðleg í dag. Nemendur horfðu á helgileik, sem 7. bekkingar fluttu, á sal og dönsuðu í kringum jólatréð. Loks voru stofujól þar sem nemendur skiptust á pökkum og gæddu sér á smákökum. Nemendur jafnt sem starfsfólk héldu heim í jólafríðið í hátíðaskapi....
Lesa meiraJólin áður fyrr
Í dag og í gær fóru 2.-3. bekkir í Stekkjarkot. Þar fengu þau fræðslu um það hvernig jólaundirbúningnum var háttað í gamla daga. Það var boðstofustemning og höfðu allir gaman af....
Lesa meiraStofujól og jólatréskemmtun
Föstudagurinn 17. desember er skertur skóladagur samkvæmt skóladagatali en þá eru haldin stofujól og jólatréskemmtun er á sal skólans. Nemendur í 1.-3. bekkjum mæta í skólann kl. 8.10 og eru til kl. 11.00. Nemendur í 4.-10. bekkjum mæta í skólann kl. 11.00 og eru til kl. 13.00. Jólafrí nemenda hefst 20. desember og er þetta því síðasti skóladagurin...
Lesa meiraBreytingar á gjaldskrá
Frá og með 1. janúar 2011 verða gerðar breytingar á gjaldskrá skólamáltíða og frístundaskóla. Mánaðargjald fyrir frístundaskóla verður 14.800 kr (innifalin síðdegishressing), tímagjald verður 325 kr (selt í 20 eininga kortum) og síðdegishressing pr. dag 125 kr. Verð á skólamáltíð í áskrift verður 250 kr....
Lesa meiraEldvarnarvika
Þessa vikuna er eldvarnarvika hjá Brunavörnum um allt land. Á fimmtudag komu fulltrúar frá Brunavörnum Suðurnesja og fræddu 3. bekkinga um eldvarnir á heimilum. Þau fengu fræðslupakka með sér heim og getraun sem þau eiga að svara. Auk þess fengu þau að sprauta úr brunaslöngu. Þetta var mjög fróðlegt og skemmtilegt....
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.











