Fréttir
Viðtöl vegna námsmats
Við minnum á viðtöl vegna námsmats sem fara fram miðvikudaginn 24. nóvember en þá mæta nemendur með foreldrum sínum í viðtal til umsjónarkennara og taka við vitnisburði. Engin kennsla er í skólanum þennan dag en Frístundaskólinn Akurskjól er opinn fyrir börn sem þar eiga vist frá 8.10-16.00....
Lesa meiraStarfsdagur
Föstudagurinn 19. nóvember er starfsdagur kennara. Engin kennsla er í skólanum þann dag en Frístundarskólinn Akurskjól er opinn frá 08:10 – 16:00 fyrir börn sem eiga þar vist. Við minnum á viðtöl vegna námsmats sem fara fram miðvikudaginn 24. nóvember en þá mæta nemendur með foreldrum sínum í viðtal til umsjónarkennara og taka við vitnisburði. Engi...
Lesa meiraEineltiskönnun í 4.-10. bekkjum
Akurskóli er þátttakandi í Olweusaráætlun gegn einelti, sem byggð er á kerfi Dans Olweusar, prófessors við Háskólann í Björgvin í Noregi. Fastur liður í aðgerðaráætluninni gegn einelti er könnun meðal nemenda í 4. – 10. bekkjum í þátttökuskólunum. Könnunin verður lögð fyrir dagana 22.-30. nóvember hér í Akurskóla. Sent hefur verið bréf til foreld...
Lesa meiraDagur íslenskrar tungu
Í tilefni af degi íslenskrar tungu kom Sigrún Eldjárn rithöfundur í Akurskóla og las upp úr bókum sínum fyrir nemendur í 1. bekk ásamt börnum úr leikskólunum Holti og Akri. Nemendur sýndu efninu áhuga og voru prúð og stillt. Kennarar í 1. bekk nota bækur Sigrúnar óspart í Byrjendalæsi og njóta þær mikilla vinsælda....
Lesa meiraNemendur Akurskóla taka þátt í First Lego
Keppnin verður haldin hjá Keili laugardaginn 13. nóvember frá klukkan 9-17. Þó nokkur fjöldi liða er skráður til þátttöku og mikils stemning. Þema keppninnar að þessu sinni er ,,Body Forward” eðe eins og við höfum kosið að hafa yfirskriftina ,,Líkaminn lifi”....
Lesa meiraForvarnardagurinn í Akurskóla
Forvarnardagurinn var haldinn í fimmta sinn miðvikudaginn 3. nóvember að frumkvæði hr. Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands. Unglingadeildin í Akurskóla tók virkan þátt í því verkefni og hlustaði á ávarp forsetans af myndbandi en síðan horfðu þau á myndband um unglinga og íþrótta- og æskulýðsstörf. Á myndbandinu var rætt við nokkra þekkta einst...
Lesa meiraHrekkjavaka í Frístundaskólanum
Í dag var mikið fjör í Frístundaskólanum. Krakkarnir héldu upp á Hrekkjavöku með miklum glæsibrag. Þau klæddust ýmsum búningum og skemmtu sér við dans....
Lesa meiraFræðslufundur um einelti
Foreldrafélag Akurskóla í samvinnu við Akurskóla stendur fyrir fræðslufundi um einelti þriðjudaginn 2. nóvember kl. 17:30-18.30 á sal skólans. Dagskrá fundarins: - Guðmundur Þórðarson setur fundinn. Lovísa Hafsteinsdóttir námsráðgjafi og Lars Jóhann Imsland aðstoðarskólastjóri segja frá viðbrögðum og verkferlum Akurskóla gegn einelti. Hafþór Birg...
Lesa meira1. bekkingar fá endurskinsvesti að gjöf frá Sparisjóðnum og FFGÍR
Í morgun afhentu Ingigerður Sæmundsdóttir fyrir hönd FFGÍR og Hulda Klara fyrir hönd foreldrafélagsins 1. bekkingum endurskinsvesti að gjöf. Það er FFGÍR og Sparisjóður Keflavíkur sem styrkja þetta verkefni. Kristján Geirsson lögreglumaður kom og ræddi við krakkana um nytsemi vestisins....
Lesa meiraVetrarfrí
Nemendur og starfsfólk Akurskóla eru í vetrarfríi föstudaginn 22. október og mánudaginn 25. október. Frístundaskólinn Akurskjól er einnig lokaður þessa daga. Kennsla hefst að nýju þriðjudaginn 26. október samkvæmt stundatöflu....
Lesa meira
Myndirnar sýna dæmi um hnetur eða mat sem inniheldur hnetur. Þær geta leynst í ýmsum öðrum matvörum.











